Ókeypis hvíldarhelgi í fallegu umhverfi

  • 21.10.2022 - 23.10.2022, Austurland

Hvíldarhelgi Krabbameinsfélags Austfjarða og Krabbameinsfélags Austurlands verður haldin 21. - 23. október næstkomandi.

Markmið hvíldarhelgarinnar er að bjóða krabbameinsgreindum og aðstand­endum þeirra upp á notalega og endurnærandi samveru í fallegu umhverfi.

Gist verður í Álfheimum á Borgarfirði Eystri og er helgin þátttakendum að
kostnaðarlausu. Þátttakendur þurfa aðeins að koma sér á staðinn.

Einungis er pláss fyrir 20 manns svo um að gera að tryggja sér sæti sem fyrst!

Skráning og fyrirspurnir: kraus@simnet.is.

Nánari dagskrá auglýst síðar.


Var efnið hjálplegt?