Núvitund: Frá streitu til sáttar
Ráðgjafarþjónustan býður upp á námskeið í núvitund sem byggist á Mindfulness-based Cognitive Therapy. Námskeiðið er fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra og byrjar mánudaginn 12. nóvember 2018 kl. 10:00-12:00, vikulega í fjögur skipti. Markmiðið er að öðlast meiri hugarró og njóta betur líðandi stundar.
Leiðbeinandi er Margrét Bárðardóttir sálfræðingur.
Nánari upplýsingar www.nuvitund.com . Skráning á netfanginu radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Þátttökugjald er 5.000 kr.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl. 9-18 og föstudaga kl. 9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15.