Námskeið: Yin Yoga
Ráðgjafarþjónustan býður upp á Yin Yoga námskeið sem hófst þriðjudaginn 7. mars 2017 kl. 10:15-11:30 og er kennt vikulega í fjögur skipti.
Í Yin Yoga ganga æfingar út á að mýkja bandvef og auka blóðflæði um liðamót og þannig auka liðleika. Í yin stöðum er slakað vel á, unnið með öndun og rækta innri ró. Æfingarnar eru aðlagaðar hverjum og einum og því ættu flestir að geta stundað Yin Yoga.
Leiðbeinendur eru Lára G. Sigurðardóttir og Ólöf María Jóhannsdóttir jógakennarar. Báðar hafa þær lokið 300 stunda jógakennaranámi.
Takmarkaður fjöldi. Þátttökugjald: 2.000 kr.
Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudag, þriðjudag og miðvikudag kl. 9:00-16:00, fimmtudag 9:00-18:00 og föstudaga 9:00-14:00. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl.13:00-15:00.