Námskeið: Núvitund fyrir ungt fólk 3/4
Námskeið í núvitund sem byggir á Mindfulness-based Cognitive Therapy (MBCT) og er ætlað fyrir aðstandendur, á aldrinum 16-22 ára, sem hafa misst náin ástvin.
Námskeiðið er fjögur skipti, vikulega á þriðjudögum kl. 16:30 - 18:00. Markmiðið er að öðlast meiri hugarró og njóta betur líðandi stundar.
- Leiðbeinandi er Edda Guðmundsdóttir sálfræðingur.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík og er opin virka daga frá kl. 9-16. Símaráðgjöf er á opnunartíma í síma 800 4040. Einnig er hægt er að senda fyrirspurnir á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.