Námskeið: Núvitund fyrir ungmenni 3/4

  • 5.3.2020, 16:30 - 18:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Ráðgjafarþjónustan býður upp á námskeið í núvitund sem byggist á Mindfulness-based Cognitive Therapy (MBCT) og er ætlað fyrir aðstandendur á aldrinum 16-22 ára sem hafa misst náinn ástvin. Námskeiðið hófst fimmtudaginn 20. febrúar 2020 og er vikulega í fjögur skipti. Markmiðið er að öðlast meiri hugarró og njóta betur líðandi stundar.

Leiðbeinandi er Edda Margrét Guðmundsdóttir sálfræðingur.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl. 9-18 og föstudaga kl. 9-14.
Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 10-15.


Var efnið hjálplegt?