Fjarnámskeið: Líf með stóma 2/2

  • 15.4.2021, 16:30 - 18:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Nýtt námskeið um málfefni einstaklinga sem lifa með stóma. Markmiðið er að gefa stómaþegum á öllum aldri, körlum og konum, þeim sem eru að fara í aðgerð og þeim sem eru komnir með stóma, kost á námskeiði þar sem fjallað er um margvíslega þætti varðandi velferð þeirra.

Fjarnámskeiðið er samstarfsverkefni Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, stómahjúkrunarfræðinga á Landspítala og Stómasamtakana.

Lögð verður áhersla á að hægt er að lifað innihaldsríku lífi með stóma og hvernig hægt er að sigrast á ýmsum áskorunum sem fylgja lífi með stóma.

Farið verður yfir matarræði, hreyfingu, hjálpartæki, gefin góð ráð varðandi ferðalög, rætt um barneignir og ýmsar nýjungar.

Fjarnámskeiðið er tvö skipti og fer fram fimmtudagana 8. og 15. apríl 2021 kl.16:30 - 18:30.

Leiðbeinendur á námskeiðinu eru fagfólk og stómaþegar. Flutt verða sex erindi - gert er ráð fyrir fyrirspurnum.

Dagskrá

8. apríl:

1. Helstu stómaaðgerðir, hvort sem þær leiða til tímabundins eða varanlegs stóma, undirbúningur fyrir læknisaðgerðirnar og umönnun stómaþega á spítalanum eftir þær. Stómaumhirða.

2. Hjálpartæki; framboð, aðgengi og val á pokum o.fl. stómavörum frá mismunandi framleiðendum. Almennar leiðbeiningar og ráðgjöf, kynningar á nýjungum og möguleikar á einstaklingsráðgjöf.

3. Næring, fæða og mataræði eftir stómaaðgerð. Hvað breytist og hvernig geta stómaþegar haft áhrif á velferð sína með fæðuvali til skemmri eða lengri tíma?

15. apríl:

4. Hreyfing, íþróttir, svo sem sund, tómstundaiðja og líkamleg færni almennt, m.a. til ferðalaga innanlands sem utan. Hvað breytist, hvað hentar og hvernig má haga undirbúningi við mismunandi aðstæður?

5. Aðlögun að breyttri líkamsímynd eftir stómaaðgerð; leiðir til að bæta líkamsvirðingu með jákvæðum hætti, t.d. með vali á fatnaði og þátttöku í félagslegu starfi. Styrking andlegrar heilsu.

6. Samskipti kynja; kynlíf, frjósemi, barneignir og fjölskyldulíf. Hvað getur breyst, og ef svo, hvaða leiðir eru vænlegastar til að bæta lífsgæði að þessu leyti ef þau hafa orðið fyrir skerðingu við stómaaðgerð?

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík og er opin virka daga frá kl. 9-16. Símaráðgjöf er á opnunartíma í síma 800 4040. Einnig er hægt er að senda fyrirspurnir á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.


Var efnið hjálplegt?