Námskeið: Jóga nidra og hljóðslökun 1/4

  • 10.5.2022, 11:00 - 11:50, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Á námskeiðinu er lögð áhersla á hugleiðslu og djúpslökun með aðferðum Jóga nidra þar sem þú liggur undir teppi. Hljóðfæri koma einnig við sögu til að dýpka upplifunina.

Ávinningurinn getur verið jákvæð og víðtæk áhrif á líkamlega og andlega líðan.

Námskeiðið hefst þriðjudaginn 10. maí kl.11:00-11:50 og er vikulega í fjögur skipti og ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum. Ekkert þátttökugjald.

Leiðbeinandi er Lóa Björk Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur


Var efnið hjálplegt?