Námskeið: Jóga Nidra og hljóðslökun
Á námskeiðinu er lögð áhersla á hugleiðslu og djúpslökun með aðferðum Jóga nidra þar sem þú liggur undir teppi. Hljóðfæri koma einnig við sögu til að dýpka upplifunina.
Ávinningurinn getur verið jákvæð og víðtæk áhrif á líkamlega og andlega líðan.
Námskeiðið hefst föstudaginn 19. nóvember kl.11:00-11:50 og er vikulega í fjögur skipti og ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum. Þátttökugjald er 2000 kr.
- Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040 .
Leiðbeinendur eru Laufey Steindórsdóttir og Lóa Björk Ólafsdóttir