Námskeið: Jóga nidra og hljóðslökun 2/4
Á námskeiðinu er lögð áhersla á hugleiðslu og djúpslökun með aðferðum Jóga nidra þar sem þú liggur undir teppi. Hljóðfæri koma einnig við sögu til að dýpka upplifunina.
Ávinningurinn getur verið jákvæð og víðtæk áhrif á líkamlega og andlega líðan.
Námskeiðið hófst þriðjudaginn 10. maí kl.11:00-11:50 og er vikulega í fjögur skipti og ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum. Ekkert þátttökugjald.
Leiðbeinandi er Lóa Björk Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur
- Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.