Námskeið: Jóga Nidra og hljóðslökun 2/4

  • 14.2.2020, 11:00 - 11:50, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Námskeiðið hófst föstudaginn 7. janúar kl.11:00-11:50 og er vikulega í fjögur skipti og ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á hugleiðslu og djúpslökun með aðferðum Jóga nidra þar sem þú liggur undir teppi. Hljóðfæri koma einnig við sögu til að dýpka upplifunina.

Ávinningurinn getur verið jákvæð og víðtæk áhrif á líkamlega og andlega líðan.

Leiðbeinendur eru Laufey Steindórsdóttir og Þórey Viðarsdóttir, jógakennarar

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl. 9-18 og föstudaga kl. 9-14.
Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 10-15.


Var efnið hjálplegt?