Námskeið: Jóga Nidra og hljóðslökun (1/4)
Á námskeiðinu er lögð áhersla á hugleiðslu og djúpslökun með aðferðum Jóga Nidra þar sem þú liggur undir teppi. Hljóðfæri koma einnig við sögu til að dýpka upplifunina. Jóga Nidra er þekkt fyrir að stuðla að jákvæðum og víðtækum áhrifum á líkamlega og andlega líðan.
Námskeiðið er ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum.
Leiðbeinendur eru Laufey Steindórsdóttir og Þórey Viðarsdóttir, jógakennarar
Námskeiðið hefst föstudaginn 4. september
Er vikulega í fjögur skipti kl.11.00-11.50 - Þátttökugjald er kr. 2000.
- Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík og er opin virka daga frá kl. 9-16. Símaráðgjöf er á opnunartíma í síma 800 4040. Einnig er hægt er að senda fyrirspurnir á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.