Námskeið: Hugræn atferlismeðferð (HAM)

  • 13.6.2017, 13:30 - 15:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Þriðjudaginn 2. maí 2017 kl. 13:30-15:30 hófst námskeið í hugrænni atferlismeðferð (HAM) í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar.

Námskeiðið er kennt vikulega í fjögur skipti og er ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum. Tilgangurinn er að vinna gegn tilfinningalegri vanlíðan.

Leiðbeinandi er Gunnjóna Una Guðmundsdóttir félagsráðgjafi.

Skráning er í síma 800 4040 eða á netfangið radgjof@krabb.is.

Þátttökugjald er 2.000 kr.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík.
Opið mánudag, þriðjudag og miðvikudag kl. 9:00-16:00, fimmtudag 9:00-18:00 og föstudag 9:00-14:00. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13:00-15:00.
Netfang: radgjof@krabb.is.


Var efnið hjálplegt?