Námskeið: Hugræn atferlis­meðferð (HAM) 1/4

  • 10.9.2020, 14:00 - 16:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Fimmtudaginn 10. september 2020 kl.14:00-16:00 hefst námskeið í hugrænni atferlismeðferð (HAM) í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar.

Námskeiðið verður í fjögur skipti, einu sinni í viku og er ætlað fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og fyrir aðstandendur. Tilgangurinn er að vinna gegn tilfinningalegri vanlíðan.

Leiðbeinandi er Gunnjóna Una Guðmundsdóttir félagsráðgjafi.

Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Þátttökugjald er 2.000 kr.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík og er opin virka daga frá kl. 9-16. Símaráðgjöf er á opnunartíma í síma 800 4040. Einnig er hægt er að senda fyrirspurnir á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.


Var efnið hjálplegt?