Námskeið: Hugræn atferlismeðferð við svefnleysi
Átt þú erfitt með að festa svefn á kvöldin? Vaknar þú upp á nóttunni og átt erfitt með að sofna á ný? Notar þú svefnlyf að staðaldri?
Námskeiðið byrjar miðvikudaginn 11. apríl 2018 kl. 14:00-15:30, fimm skipti, einu sinni í viku, og er ætlað fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur.
Leiðbeinandi er Dr. Erla Björnsdóttir sálfræðingur.
Skráning á radgjof@krabb.is og í síma 800 4040. Þátttökugjald er 5.000 kr.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl.9-18 og föstudaga kl.9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15.