Námskeið: Halda mátt um hjarta þitt - núvitund með sjálfúð

  • 8.4.2016, 14:00 - 15:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Föstudaginn 8. apríl 2016 kl.14:00-15:30 hefst námskeið í núvitund með sjálfúð.

Námskeiðið verður í þrjú skipti, á föstudögum og er ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum þeirra.

Námskeiðið hentar vel þeim sem vilja tileinka sér mildi í eigin garð, auka andlega vellíðan.

Leiðbeinandi er Brynhildur Scheving Thorsteinsson, sálfræðingur. Skráning er í síma 800 4040 eða á radgjof@krabb.is  Þátttökugjald er 3.000 kr.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið virka daga kl. 9:00-16:00. Fagfólk svarar í síma 800 4040  kl. 13:00-15:00. Netfang: radgjof@krabb.is.


Var efnið hjálplegt?