Námskeið: Gott útlit - betri líðan
Snyrtinámskeið ætlað konum sem eru í krabbameinsmeðferð.
Sérfræðingur frá Lancome leiðbeinir um förðun, umhirðu húðar o.fl. Skráning á netfang radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald.
Við höldum áfram að gera okkar ýtrasta til að fara eftir fyrirmælum sóttvarnalæknis, passa upp á fjarlægð á milli einstaklinga og fjölda í hverju rými þess. Ef fólk finnur fyrir flensueinkennum er mikilvægt fresta heimsókn til okkar.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík og er opin virka daga frá kl. 9-16. Símaráðgjöf er á opnunartíma í síma 800 4040. Einnig er hægt er að senda fyrirspurnir á radgjof@krabb.is og er þeim svarað eins fljótt og hægt er.