Námskeið: Fysio Flow (hreyfiflæði) 2/4

  • 11.9.2019, 10:15 - 11:10, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Námskeiðið hófst miðvikudaginn 4. september 2019 kl. 10:15-11:10, verður vikulega í sex skipti og er ætlað þeim sem hafa greinst með krabbamein.

Heiðbjört Tíbrá Kjartansdóttir sjúkraþjálfari mun stýra námskeiðinu þar sem áhersla er lögð á að hreyfa bandvefi líkamans með rólegum teygjum og æfingum. Hentar m.a. þeim sem glíma við verki, streitu og stífleika.

Skráning á radgjof@krabb.is eða síma 800-4040. Takmarkaður fjöldi, þátttökugjald er 2.000 kr.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl. 9-18 og föstudaga kl. 9-14.
Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 10-15.


Var efnið hjálplegt?