Námskeið: Einbeiting og minni
Minnisnámskeið verður haldið í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar. Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa áhyggjur af minni sínu í kjölfar veikinda en einnig þeim sem vilja fræðast um minnið og læra að nýta sér mismunandi minnistækni.
Þriðjudagana 18. og 25. september kl. 14:00-15:15.
Leiðbeinandi er Þorri Snæbjörnsson sálfræðingur.
Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudag, þriðjudag og miðvikudag kl. 9:00-16:00, fimmtudag 9:00-18:00 og föstudag 9:00-14:00. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13:00-15:00.