Námskeið: Einbeiting og minni
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa áhyggjur af minni sínu í kjölfar veikinda en einnig þeim sem vilja fræðast um minnið og læra að nýta sér mismunandi minnistækni.
Námskeiðið hefst 11. október og er tvö skipti, vikulega á mánudögum
kl. 13:00 -14:00. Ekkert þátttökugjald.
Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa greinst með krabbamein og fyrir aðstandendur.
Leiðbeinandi er Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur.
- Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.