Námskeið: Að skrifa og skapa 2/2
Námskeið í skapandi skrifum fer fram dagana 7. og 9. maí 2019 kl. 13:30-15:30 í húsnæði Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins.
Leiðbeinandi er Anna Heiða Pálsdóttir, háskólakennari og doktor í bókmenntafræði.
Leiðbeint verður um hvernig hægt er að virkja sköpunargáfuna, nýta reynsluna eða skrifa sér til gamans.
Fjöldi þátttakenda er takmarkaður. Skráning fer fram með tölvupósti á netfangið radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald.