Námskeið: Að skrifa og skapa
Þriðjudaginn 13. nóvember og fimmtudaginn 15. nóvember 2018 kl.13:30-15:30 verður námskeið í skapandi skrifum í húsnæði Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins.
Leiðbeinandi er Anna Heiða Pálsdóttir háskólakennari og doktor í bókmenntafræði.
Leiðbeint verður hvernig hægt er að virkja sköpunargáfuna, nýta reynsluna eða
skrifa sér til gamans.
Fjöldi þátttakenda er takmarkaður, skráning er á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040 . Ekkert þátttökugjald.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl.9-18 og föstudaga kl.9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15.