Námskeið: Að skrifa og skapa

  • 9.5.2017, 13:30 - 15:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Þriðjudaginn 9. maí og fimmtudaginn 11. maí 2017 kl. 13:30-15:30 verður námskeið í skapandi skrifum í húsnæði Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins. 

Leiðbeinandi er Anna Heiða Pálsdóttir háskólakennari og doktor í bókmenntafræði. 

Leiðbeint verður hvernig hægt er að virkja sköpunargáfuna, nýta reynsluna eða skrifa sér til gamans.

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður, skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Ekkert þátttökugjald.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið virka daga kl. 9:00-16:00. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13:00-15:00.


Var efnið hjálplegt?