Nám­skeið: Mín leið að lok­­­inni með­­­ferð við brjósta­­­­krabba­­meini 3/4

  • 21.3.2019, 9:30 - 12:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Námskeiðið hófst 7. mars og er vikulega í fjögur skipti, þrjár klukkustundir í senn. Það fer fram á fimmtudögum kl. 9:30-12:30 í húsnæði Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð 8. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður.

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Um námskeiðið

Námskeiðið „Moving Forward“ var upphaflega þróað af samtökunum ,,Breast Cancer Care” í Bretlandi. Haldin hafa verið um 230 námskeið á rúmlega 30 stöðum í Bret­landi og yfir 2.700 konur hafa tekið þátt. Mikil ánægja hefur verið með þessi námskeið þarlendis.

Megintilgangur námskeiðsins er að þátttakendur hitti aðra í svipuðum sporum ásamt því að fá stuðning og fræðslu um ýmslegt sem konur eru að upplifa að lokinni krabba­meinsmeðferð.

Á námskeiðinu er farið í gegnum helstu fylgikvilla meðferða, upplýsingar eru veittar um þá stuðningsþjónustu sem í boði er, hvatt er til heilbrigðs lífsstíls og valdeflingar og dregið úr einangrun með jafningjastuðningi.

Dæmi um efni sem tekið er fyrir á námskeiðinu: Mataræði, hreyfing, einkenni tíða­hvarfa, sogæðabjúgur, merki og einkenni sem mikilvægt er að þekkja, krabbameins­tengd þreyta, kynheilbrigði, streita, slökunarleiðir ásamt mörgu fleiru sem snýr að lífinu eftir greiningu og meðferð brjóstakrabbameins.

Umsjón með námskeiðinu hafa krabbameinshjúkrunarfræðingur og fulltrúi frá Brjóstaheill – Samhjálp kvenna ásamt gestafyrirlesurum sem eru sérfræðingar hver á sínu sviði.

  • Ætlað konum sem hafa greinst með brjóstakrabbamein og æskilegt er að ekki séu liðin meira en tvö ár frá meðferðarlokum.
  • Mikilvægt er að mæta í alla fjóra námskeiðshlutana.

Var efnið hjálplegt?