Nám­­skeið: Konur og kyn­­heil­­brigði 2/3

  • 7.3.2019, 13:30 - 15:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Fimmtudaginn 28. febrúar 2019 kl. 13:30-15:00 hófst námskeið fyrir konur með krabbamein. Námskeiðið er byggt á fyrirmynd frá Kanada.

Námskeiðið er í þrjú skipti, einu sinni í viku. Á námskeiðinu er veitt fræðsla um kynheilbrigði í kjölfar krabbameinsmeðferðar. Auk fræðslu er markmiðið að efla kynheilbrigði með núvitund og hugrænni atferlismeðferð.

Leiðbeinandi er Áslaug Kristjánsdóttir, hjúkrunar- og kynfræðingur.

Skráning á radgjof@krabb.is / s: 800 4040. Ekkert þátttökugjald.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl. 9-18 og föstudaga kl. 9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040kl. 13-15


Var efnið hjálplegt?