Námskeið: Konur og kynheilbrigði 1/3
Fimmtudaginn 28. febrúar 2019 kl. 13:30-15:00 hefst námskeið fyrir konur með krabbamein. Námskeiðið er byggt á fyrirmynd frá Kanada.
Námskeiðið verður í þrjú skipti, einu sinni í viku. Á námskeiðinu er veitt fræðsla um kynheilbrigði í kjölfar krabbameinsmeðferðar. Auk fræðslu er markmiðið að efla kynheilbrigði með núvitund og hugrænni atferlismeðferð.
Leiðbeinandi er Áslaug Kristjánsdóttir, hjúkrunar- og kynfræðingur.
Skráning á radgjof@krabb.is / s: 800 4040. Ekkert þátttökugjald.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl. 9-18 og föstudaga kl. 9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15