Námskeið: Jóga nidra og hljóðslökun 5/6
Námskeiðið hófst föstudaginn 18. október kl.11:00-12:00 vikulega í sex skipti og ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og fyrir aðstandendur.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á hugleiðslu og djúpslökun með aðferðum Jóga nidra þar sem þú liggur undir teppi. Hljóðfæri koma einnig við sögu til að dýpka upplifunina.
Ávinningurinn getur verið jákvæð og víðtæk áhrif á líkamlega og andlega líðan.
Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Þátttökugjald er 2.000 kr.
Leiðbeinendur eru Laufey Steindórsdóttir og Þórey Viðarsdóttir, jógakennarar
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl. 9-18 og föstudaga kl. 9-14.
Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 10-15.