Nám­­skeið: Jóga Nidra djúp­­slökun 3/4

  • 15.3.2019, 11:00 - 12:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Námskeiðið hófst föstudaginn 1.mars kl.11:00 – 12:00 og er vikulega í fjögur skipti. Ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á hugleiðslu og djúpslökun með aðferðum Jóga nidra þar sem þú liggur undir teppi. Einnig kemur tónheilun við sögu.

Ávinningurinn getur verið jákvæð og víðtæk áhrif á líkamlega og andlega líðan.

Skráning á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040. Þátttökugjald er 2.000 kr.

Leiðbeinendur eru Laufey Steindórsdóttir og Þórey Viðarsdóttir, jógakennarar

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl.9-18 og föstudaga kl.9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040kl. 13-15.


Var efnið hjálplegt?