Námskeið: Hugræn atferlismeðferð við svefnleysi 4/5
Átt þú erfitt með að festa svefn á kvöldin? Vaknar þú upp á nóttunni og átt erfitt með að sofna á ný? Notar þú svefnlyf að staðaldri?
Námskeiðið hófst fimmtudaginn 28. febrúar 2019 kl. 14:00-15:30, og er vikulega í fimm skipti, og er ætlað fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur.
Leiðbeinandi er Dr. Erla Björnsdóttir sálfræðingur.
Skráning á radgjof@krabb.is /s. 800 4040 . Þátttökugjald er 5.000 kr.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl. 9 - 18 og föstudaga kl. 9 - 14. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15.