Námskeið: Hugræn atferlismeðferð (HAM)
Þriðjudaginn 9. október 2018 kl.14:00-16:00 hefst námskeið í hugrænni atferlismeðferð (HAM) í húsnæði Ráðgjafarþjónustunnar.
Námskeiðið er kennt vikulega í fjögur skipti og er ætlað þeim sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendum. Tilgangurinn er að vinna gegn tilfinningalegri vanlíðan.
Leiðbeinandi er Gunnjóna Una Guðmundsdóttir félagsráðgjafi.
Skráning er á radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.
Þátttökugjald er 2.000 kr.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík.
Opið mánudag, þriðjudag og miðvikudag kl. 9:00-16:00, fimmtudag 9:00-18:00 og föstudag 9:00-14:00. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13:00-15:00.
Netfang: radgjof@krabb.is.