Nám­skeið fyrir stuðn­ings­full­trúa: Vilt þú láta gott af þér leiða?

  • 16.4.2018, 17:00 - 21:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Næsta stuðningsfulltrúanámskeið hefst í apríl

Stuðningsfulltrúanámskeið fyrir verðandi stuðningsfulltrúa í stuðningsneti Krafts og Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins verður haldið mánudagana 16. apríl og 23. apríl, frá klukkan 17:00 til 21:00. Námskeiðið verður haldið í sal Ráðgjafar­þjónustunnar á fyrstu hæð í húsnæði Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.

Á námskeiðinu er m.a. veitt þjálfun í samtalstækni, að deila reynslu sinni á viðeigandi hátt og að setja mörk. Ásamt því að farið verður yfir ýmis málefni sem oft fylgja krabbameinsveikindum eins og erfiðar tilfinningar, hvar má nálgast upplýsingar, aðstoð fagaðila, samskipti í fjölskyldum, að tala við börn um krabbamein og fleira.

Boðið verður upp á kvöldverð og komið verður til móts við þá sem ekki búa á höfuðborgarsvæðinu og þurfa að ferðast lengri vegalengdir til þess að komast á námskeiðið.

Við hvetjum aðstandendur og karla sérstaklega til þess að skrá sig á námskeiðið.

Umsjónarmaður námskeiðsins er Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur og umsjónarmaður stuðningsnets Krafts og Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands.

Skráning á netfanginu salfraedingur@kraftur.org.

Nánari upplýsingar í síma: 866-9618.


Var efnið hjálplegt?