Mottudagurinn
Á Mottudeginum látum við ímyndunaraflið ráða för og skörtum öllu mögulegu tengdu karlmanninum, fatnaði, höfuðfötum, gerviskeggi o.s.f. og hvetjum alla landsmen til að gera slíkt hið sama. Leyfum karlmennskunni að njóta sín þennan dag. Hvetjum vini, vandamenn og samstarfsfélaga að taka þátt í átakinu og ekki væri verra ef starfsmenn vinnustaða tækju sig saman og efndu til skemmtilegra leikja í tengslum við daginn! Krabbameinsfélagið hvetur hópa til að gera eitthvað skemmtilegt saman og láta mynda sig á ýmsan hátt og senda á mottumars@krabb.is eða setja á Facebooksíðu átaksins.
Hjá Krabbameinsfélaginu er hægt að fá ýmislegt sem fólk getur notað til að skreyta sig á Mottudaginn. Þar á meðal gervimottur sem eru sex saman í pakka en á bakhlið spjaldsins eru skilaboð til karla og hvernig þeir geta hugað að heilsu sinni. Skoðaðu vörurnar í netverslun Krabbameinsfélagsins hér .
Meginmarkmið átaksins „karlmenn og krabbamein / Mottumars 2016“ var líkt og fyrri ár að hvetja karlmenn til að þekkja einkenni krabbameina og stuðla að jákvæðum breytingum á lífsháttum til að koma í veg fyrir krabbamein“.
Átak Mottumars er tvíþætt; bæði sem árveknis- og fjáröflunarátak. Þeir fjármunir sem safnast í átakinu eru notaðir í forvarnir, fræðslu, ráðgjöf og rannsóknir.