Hádegismálþing: Krabbameinsrannsóknir til framfara

  • 24.9.2020, 12:00 - 13:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

 

 

Krabbameinsfélagið stendur fyrir
hádegismálþingi á alþjóðlegum degi krabbameinsrannsókna.

Krabbameinsrannsóknir til framfara

 24. september 2020 kl. 12:00-13:00.
Staðsetning: Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8, 4. hæð og í streymisveitu Krabbameinsfélagsins.

Vegna sóttvarnarráðstafanna verður að gæta að fjöldatakmörkunum,
því er skráning nauðsynleg. SKRÁNING

Dagskrá: 

 

Húsið opnar kl. 11:45. Léttar veitingar í boði.

  • 12:00-12:10 Setning.
  • 12:10-12:20 Fyrstu niðurstöður úr Áttavitanum, rannsókn á reynslu fólks sem greinst hefur með krabbamein. Jóhanna Eyrún Torfadóttir, Krabbameinsfélaginu.
  • 12:20-12:35 Krabbameinsrannsóknir hjá börnum:

Gagnagrunnur um æðaleggi hjá krabbameinsveikum börnum. Valtýr Stefánsson Thors,    Landspítala. Styrkt af Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins.

Síðbúnar afleiðingar krabbameina í æsku: Heilsufar, lífsgæði og hjarta- og efnaskiptatengdir áhættuþættir á fullorðinsaldri. Vigdís Hrönn Viggósdóttir, Landspítala. Styrkt af Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins.

  • 12:35-12:45 Hlutverk endurvinnslu í frumum í krabbameinum. Margrét Helga Ögmundsdóttir, Háskóla Íslands. Styrkt af Vísindasjóði Krabbameinsfélagsins.
  • 12:45-12:55 Gæðaskráning greiningar og meðferðar krabbameina á Íslandi. Laufey Tryggvadóttir og Helgi Birgisson, Krabbameinsfélaginu.

Fundarstjóri: Sigríður Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala og formaður Vísindasjóðs Krabbameinsfélagsins.


Var efnið hjálplegt?