Stuðningshópur: Makamissir hópur I
Að missa maka er mikið áfall. Þá um leið missum við góðan vin, elskhuga, barnsföður/móður, lífsförunaut og sálufélaga. Makamissir er með álagsmestu lífsreynslu sem þekkt er. Eftirlifandi maki þarf að takast á við miklar breytingar og aðlagast lífi á mjög breyttum forsendum.
Fagleg aðstoð, fjölskyldan, vinir og – kannski einna mikilvægast – einstaklingar í svipaðri stöðu eru flestum besta hjálpin.
Ráðgjafarþjónustan í samstarfi við Sorgarmiðstöð býður upp á stuðningshópa fyrir ekkjur og ekkla sem hafa orðið fyrir makamissi.
Hópastarfið hefst 20. janúar og er vikulega í sex skipti á miðvikudögum kl. 11:00 - 12:30. Það kostar ekkert að koma í hópastarf en nauðsynlegt er að skrá sig til að tryggja þátttöku.
- Hægt er að fá nánari upplýsingar og aðstoð við að skrá sig í hópinn með því að senda póst á radgjof@krabb.is eða hafa samband í síma 800 4040.