Má aldrei neitt? - Rabb­fundur hjá Góðum hálsum

  • 3.10.2018, 17:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Góðir hálsar, stuðningshópur um krabbamein í blöðruhálskirtli, verða með mánaðarlegan rabbfund sinn í húsi Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík miðvikudaginn 3. október kl. 17.00.  

Sigrún Elva Einarsdóttir fræðslufulltrúi Krabbameinsfélagsins fjallar um hvernig hægt er að draga úr líkum á því að fá krabbamein. Yfirskrift erindis hennar er „Má aldrei neitt?”

Fundurinn er einkum ætlaður þeim sem greinst hafa með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandendum þeirra. 

Kaffi verður á könnunni.


Var efnið hjálplegt?