Lungnahópurinn - rabbfundur
Opið hús hjá stuðningshópi fólks sem hefur greinst með krabbamein í lungum og aðstandendur þess verður haldið fimmtudaginn 11. maí, á fyrstu hæð í húsi Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8, Reykjavík.
Tilgangur rabbfundarins er að fólk geti hitt aðra í svipaðri stöðu, spjallað og skipst á hagnýtum upplýsingum. Fólk í þessum aðstæðum er sérstaklega velkomið.