Kynningarfundur: Samtal um makamissi

  • 1.11.2017, 20:00, Safnaðarheimili Háteigskirkju

Ný dögun og Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins bjóða ekkjum og ekklum að taka þátt í starfi tveggja stuðningshópa í haust.

Kynningarfundur verður haldinn í  safnaðarheimili Háteigskirkju miðvikudaginn 1. nóvember 2017 kl. 20:00.

Hulda Guðmundsdóttir fjallar um makamissi og kynnt verður væntanlegt hópastarf.

Tekið verður við skráningu í stuðningshópa fyrir þá sem hafa misst maka.

Kaffiveitingar. Aðgangur ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.


Var efnið hjálplegt?