Kynningarfundur: Samtal um makamissi
Ný dögun og Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins bjóða ekkjum og ekklum að taka þátt í starfi tveggja stuðningshópa í haust.
Kynningarfundur verður haldinn í safnaðarheimili Laugarneskirkju miðvikudaginn 7. nóvember 2018 kl. 20:00.
Hulda Guðmundsdóttir og Olga Snorradóttir fjalla um makamissi og kynnt verður væntanlegt hópastarf.
Tekið verður við skráningu í stuðningshópa fyrir þá sem hafa misst maka.
Aðgangur ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.