Kyn­lífs­ráð­gjöf

  • 11.10.2018, 9:00 - 15:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Boðið er uppá kynlífs- og pararáðgjöf í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins.

Ráðgjöfin er ætluð þeim sem greinst hafa með krabbamein og/eða aðstandendum þeirra. Jafnt pör sem einstaklingar geta nýtt sér ráðgjöfina. Tilgangurinn er að vinna að bættu kynheilbrigði og að takast á við breytingar í kjölfar veikinda.

Ráðgjafi er Áslaug Kristjánsdóttir hjúkrunar- og kynfræðingur. Bóka má viðtal í síma 800 4040 alla fimmtudaga á milli kl. 09:00-15:00 eða á radgjof@krabb.is.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl.9-18 og föstudaga kl.9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15.


Var efnið hjálplegt?