Kraftur: Ungmenni og krabbamein

  • 22.11.2023, 18:00 - 20:00, Kraftur - Félag ungs fólks með krabbamein

Kraftur og Bergið Headspace ætla að sameina krafta sína og bjóða ungmennum á aldrinum 14 til 20 ára upp á að koma og ræða hvernig er að vera aðstandandi krabbmeinsgreinds einstaklings. Miðvikudaginn 22. nóvember kl. 18:00-20:00 í húsnæði Krafts Skógarhlíð 8, kjallara.


Ef þú ert barn, systkini, vinur eða náinn aðstandandi getur það haft í för með sér verulegar breytingar á þínu lífi þar sem ýmsar spurningar geta vaknað og getur verið erfitt að vera til staðar fyrir þig og aðra á sama tíma.
Það eru fleiri í þínum sporum.


Guðlaug Ragnarsdóttir náms- og starfsráðgjafi hjá Krafti og Bergvin Hreiðarr Björgvinsson ráðgjafi hjá Berginu sem sjá um þetta mikilvæga spjall.


Var efnið hjálplegt?