Kraftur: Jólin og sorgin í erfiðum aðstæðum. Einnig í streymi.

  • 23.11.2022, 17:15 - 18:15, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Miðvikudaginn 23. nóvember kl. 17:15 verður Kraftur með fyrirlesturinn Jólin og sorgin í erfiðum aðstæðum en hann er liður í mánaðarlegri fyrirlestraröð Krafts – Ungt fólk og krabbamein. Fyrirlesturinn verður haldinn í húsakynnum Krabbameinsfélagsins, á 1. hæð í Skógarhlíð 8. Einnig í boði í streymi horfa hér.

Allir sem hafa orðið fyrir sorg kannast við erfið tímamót eins og afmæli og jólum og fólk fer jafnvel að byrja kvíða hátíðum. Ína Ólöf Sigurðardóttir frá Sorgarmiðstöðinni mun koma og vera með fræðslu sem og að segja frá sinni reynslu og miðla áfram uppbyggilegum ráðum um hvað getur hjálpað þegar erfiðar aðstæður eru til staðar.

Fyrirlesturinn er öllum opinn og án endurgjalds og verður boðið upp á kaffi og meðlæti.

Endilega meldið ykkur á fyrirlesturinn svo við getum áætlað veitingar.

 

  • Kraftur er eitt af 26 aðildarfélögum Krabbameinsfélagsins.

 


Var efnið hjálplegt?