Kraftur: Að deita eftir krabbamein

  • 19.2.2020, 17:15 - 18:30, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Í tilefni af Valentínusardeginum og öðrum rómantískum dögum eins og Bóndadegi og Konudegi ætlum við að vera með fyrirlestur um hvernig það er að byrja í sambandi eða vera deita eftir veikindi.

Ef þú ert á lausu þá gætir þú verið með áhyggjur af því að krabbameinið kunni að hafa áhrif á möguleika þína fyrir samband. Það getur verið erfitt að fara á stefnumót, útlit þitt gæti hafa breyst og sjálfstraustið minnkað. Þú veist kannski ekki hvort þú eigir að minnast á krabbameinið eða ekki og hvenær er þá rétti tíminn. Það að fara á deit er alltaf erfitt en um leið líka spennandi, hvort sem þú ert með krabbamein eða ekki.

Áslaug Kristjánsdóttir, hjúkrunar- og kynfræðingur, ræða um sambönd, stefnumót og veikindi og annað sem heyrir undir samskipti kynjanna undir þessum kringumstæðum. Einnig mun Kraftsfélagi miðla af eigin reynslu.

Annar fyrirlesturinn á nýju ári í fyrirlestraröð Krafts - Ungt fólk og krabbamein - verður haldinn miðvikudaginn 19. febrúar kl. 17.15 í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8.
Fyrirlesturinn er öllum opinn og er án endurgjalds. Boðið verður upp á léttar veitingar. Allir hjartanlega velkomnir.


Var efnið hjálplegt?