Kastað til bata
„Kastað til bata“ er verkefni á vegum Brjóstaheilla ‒ Samhjálpar kvenna, Krabbameins-félagsins og styrktaraðila þar sem konum er boðið í veiðiferð. Þetta skemmtilega verkefni er hugsað sem endurhæfing fyrir konur sem lokið hafa meðferð við brjóstakrabbameini.
Markmið veiðiferðarinnar er að veita konum tækifæri til að styrkja sig á líkama og sál með því að æfa flugukast í fallegu umhverfi, njóta samvista við veiðifélaga með svipaða reynslu – og veiða ef heppnin er með þeim. Vanir fluguveiðimenn kenna þátttakendum að kasta flugu og er ávallt tekið mið af líkamlegri getu þeirra.
Að þessu sinni verður farið í Varmá í Hveragerði og geta 12-14 konur tekið þátt. Ferðin hefst á hádegi sunnudaginn 3. júni og henni lýkur um kaffileytið þriðjudaginn 5. júní. Þessi ævintýraferð er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Þetta er í níunda sinn sem „Kastað til bata“ verkefnið er í boði. Þátttakendur hafa verið afar ánægðir:
„Þetta var sannkallað ævintýri frá upphafi til enda.“„Frábær ferð í alla staði, gott að hitta konur sem hafa gengið í gegnum sambærilega hluti og fá upplýsingar um þeirra ferli.“„Þvílíkt flott hópefli. Bý að þessu um ókomna tíð. Yndislegur hópur.“
Þær konur sem hafa áhuga á taka þátt eru beðnar að senda umsókn á netfangið kastadtilbata@krabb.is fyrir 1. maí 2018 þar sem fram koma eftirfarandi upplýsingar:
- Nafn
- Heimilisfang
- Sími
- Kennitala
- Hvenær meðferð lauk (mánuður og ár)
- ...ásamt stuttri greinargerð um hvers vegna umsækjandi vill taka þátt í verkefninu og hvernig hann metur líkamlegt ástand sitt til þess að taka þátt í endurhæfingarverkefni á borð við þetta.
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Krabbameinsfélagsins, www.krabb.is eða hjá starfsfólki Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins í síma 800 4040 (radgjof@krabb.is).