Karlarnir og kúlurnar

  • 12.9.2017, 10:00 - 14:30, Bakkakot, Mosfellsdal

Karlarnir og kúlurnar er verkefni á vegum Krabbameinsfélags Íslands, Góðra Hálsa, Frískra manna og Krafts þar sem körlum sem fengið hafa krabbamein er gefið tækifæri koma saman og spila golf.

Jón Karlsson PGA golfkennari mun leiðbeina þátttakendum með golfsveifluna áður en haldið er út á golfvöll þar sem spilaðar verða 9 holur (Texas Scramble). Í ár fer mótið fram á Bakkakotsvelli í Mosfellsdal, þriðjudaginn 12. september.  Boðið verður uppá léttar veitingar í hádeginu.

Tólf menn fá tækifæri til að taka þátt í þessu verkefni sér að kostnaðarlausu.

Fyrstur kemur - fyrstur fær! Búið er að panta gott veður!

Umsóknir þarf að senda fyrir 6. september með tölvupósti á netfangið radgjof@krabb.is eða í síma 800 4040.

Nánari upplýsingar er að finna hér.

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík.
Opið virka daga kl. 9:00-16:00. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13:00-15:00. Netfang: radgjof@krabb.is.


Var efnið hjálplegt?