Kaffihúsakvöld Krafts
Næsta kaffihúsakvöld Krafts verður haldið miðvikudaginn 2.maí og ætlum við að hittast þar sem Kraftur er til húsa eða í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins, Skógarhlíð 8.
Markmiðið með kvöldunum er að ungt fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur geti hitt aðra í sömu sporum og spjallað. Fulltrúar frá Krafti taka vel á móti ykkur yfir rjúkandi heitum kaffibolla :)
Ef þið hafið einhverjar spurningar getið þið haft samband í síma Krafts 866-9600
Sjáumst í Krafti yfir rjúkandi heitum bolla í kósý stemmingu!