Jólabókakynning Ráðgjafarþjónustunnar
Mánudaginn 16. nóvember er fyrsta jólabókakynning Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins kl. 12:10-12:50 að Skógarhlíð 8, 1. hæð.
- Rakel Fleckenstein Björnsdóttir kynnir bókina Þarmar með sjarma sem gefin er út af bókaútgáfunni Veröld.
- Gunnar Kr. Sigurjónsson kynnir bókina Það er gott að búa í Kópavogi sem eru safn gamansagna úr Kópavogi. Bókin er gefin út af bókaútgáfunni Hólum.
Bókakynningin er öllum opin.
Boðið verður upp á te, kaffi og brauð.