Jóga Nidra fyrir aðstandendur
Fimmtudaginn 7. mars bjóðum við aðstandendum að upplifa Jóga Nidra djúpslökun frá kl. 17:00-18:00. Þú liggur á dýnu eða situr í stól og leyfir þér um stund að sleppa tökunum á streitu og áhyggjum.
Frá kl. 16:00 er húsið opið fyrir kaffi eða tesopa og spjall eins og alltaf er fyrsta fimmtudag hvers mánaðar.
Hjúkrunarfræðingur, félagsráðgjafi eða sálfræðingur eru á staðnum.
Allir aðstandendur eru velkomnir og skráning fyrirfram er óþörf.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudaga til miðvikudaga kl. 9-16, fimmtudaga kl.9-18 og föstudaga kl.9-14. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13-15.