Innanmein eða krabbamein

Fyrirlestraröðin ungt fólk og krabbamein

  • 17.10.2017, 17:15, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Þriðjudaginn 17. október nk. verður haldinn annar fyrirlesturinn í mánaðarlegri fyrirlestraröð Krafts – Ungt fólk og krabbamein.

Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, þjóðfræðingur, rýnir í elstu lækningabækur, skoðar veikindi til forna og fjallar um lækningaaðferðir á innanmeinum sem hugsanlega hafa verið krabbamein.

Fyrirlesturinn hefst kl 17.15 og verður haldinn í húsakynnum Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélags Íslands, Skógarhlíð 8, 1. hæð

Hér má sjá viðburðinn inn á Facebooksíðu félagsins.

Allir eru velkomnir og boðið verður upp á léttar veitingar.


Var efnið hjálplegt?