Hópslökun: gestaleiðbeinandi

  • 11.10.2017, 11:30 - 12:00, Krabbameinsfélagið Skógarhlíð 8

Miðvikudaginn 11. október kl. 11:30-12:00 ætlar Þórey Viðarsdóttir að leiða djúpslökun í gegnum tónheilun með kristals- og tíbetskálum. 

Með tónheilun skapast aðstæður til að upplifa djúpa slökun. Talið er að tíðni tónanna hjálpi til við að losa um staðnaða líkamlega og tilfinningalega orku. Þannig stuðlar tónheilun að jafnvægi og vellíðan.

Leiðbeinandi: Þórey Viðarsdóttir, jógakennari.

Allir velkomnir og ekki þörf á að skrá sig.


Var efnið hjálplegt?