Hópslökun fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur þeirra
Opnir tímar í djúpslökun fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur eru í boði í Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8, Reykjavík, frá klukkan 11:30–12:00 alla miðvikudaga.
Leiðbeinendur eru Auður E. Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur, og Gunnjóna Una Guðmundsdóttir félagsráðgjafi.
Allir eru velkomnir og ekki þörf á að skrá sig fyrirfram.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík.
Opið mánudag, þriðjudag og miðvikudag kl. 9:00-16:00, fimmtudag kl. 9:00-18:00 og föstudag kl. 9:00-14:00. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13:00-15:00.
Netfang: radgjof@krabb.is.