Hefur þú þörf fyrir stuðning og spjall?
Hjá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins starfa hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafi og sálfræðingur. Boðið er upp á einstaklingsviðtöl til stuðnings og ráðgjafar fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og aðstandendur þeirra.
Það getur verið gott að setjast niður og ræða málin. Við erum tilbúin að hlusta og liðsinna þér. Þú getur pantað tíma í síma 800 4040 eða á netfanginu radgjof@krabb.is.
Einnig er hægt að koma við án þessað gera boð á undan sér. Viðtöl eru fólki að kostnaðarlausu.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélagsins er að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Opið mánudag, þriðjudag og miðvikudag kl. 9:00-16:00, fimmtudag kl. 9:00-18:00 og föstudag kl. 9:00-14:00. Fagfólk svarar í síma 800 4040 kl. 13:00-15:00.
Starfsfólk Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins (frá vinstri).
- Sigrún Lillie Magnúsdóttir, forstöðukona og hjúkrunarfræðingur.
- Auður E. Jóhannsdóttir, hjúkrunarfræðingur
- Lóa Björk Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur
- Þorri Snæbjörnsson, sálfræðingur
- Gunnjóna Una Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi